Lýðháskólar

Fólk á öllum aldri getur lagt stund á nám í norrænum lýðháskólum. Á öllum Norðurlöndum nema Íslandi eru lýðháskólar þar sem í boði er fjölbreytt nám, góð aðstaða og þroskandi námsumhverfi fyrir fólk á öllum aldri. Lýðháskólanám er fyrir alla, óháð skólagöngu og reynslu, en námsefnið og námsferlið er mótað eftir þörfum nemendahópsins; fjölbreytt nám og góð aðstaða er í boði.

Upplýsingar um norræna lýðháskóla er að finna á vefsíðum landskrifstofa lýðháskólanna:
DanmörkFinnlandNoregurSvíþjóðÁlandseyjarFæreyjarGrænland

Styrkir til lýðháskólanáms
Undanfarin misseri hefur Norræna félagið á Íslandi veitt íslenskum nemendum á norrænum lýðháskólum styrki. Lýðháskólastyrkir félagsins eru háðir fjárveitingu frá NORDPLUS VOKSEN. Umsóknarfresturinn rennur út 1. júlí fyrir haustönn og allt árið og 1. desember fyrir vorönn. Staðfesting á úthlutun styrkjanna er veitt i lok júlí fyrir haustönn og í byrjun desember fyrir vorönn.

Umsóknareyðublaðið fæst hér.

Norrænu félögin í Danmörku og Noregi hafa einnig veitt styrki til lýðháskólanáms, sem og UMFÍ.

Facebook síða
Við höfum opnað lýðháskólasíðu á Facebook fyrir fyrrum, núverandi og verðandi lýðháskólanema. Þar hafa skapast líflegar umræður og margir hafa sagt frá sinni lýðháskólaupplifun. Ef þú vilt lesa um hvernig íslenskum lýðháskólanemum hefur líkað dvölin úti og jafnvel spyrjast fyrir um þinn skóla skaltu ganga í grúppuna Lýðháskólar á Norðurlöndum.

Lýðháskólar á Íslandi
Lýðháskólar eru ekki starfandi á Íslandi um þessar mundir hafa þó verið starfræktir hérlendis á árum áður. Bjarney Kristín Ólafsdóttir fjallaði um lýðháskólahugsjónina og sögu lýðháskóla á Íslandi í lokaritgerð sinni í guðfræði frá Háskóla Íslands í maí 2011. Hér má lesa ritgerðina.