Lýðháskólar

Fólk á öllum aldri getur lagt stund á nám í norrænum lýðháskólum. Á öllum Norðurlöndum eru lýðháskólar þar sem í boði er fjölbreytt nám, góð aðstaða og þroskandi námsumhverfi fyrir fólk á öllum aldri. Lýðháskólanám er fyrir alla, óháð skólagöngu og reynslu, en námsefnið og námsferlið er mótað eftir þörfum nemendahópsins; fjölbreytt nám og góð aðstaða er í boði.

Upplýsingar um norræna lýðháskóla er að finna á vefsíðum landskrifstofa lýðháskólanna:
Danmörk –  FinnlandNoregur –  SvíþjóðÁlandseyjar –  FæreyjarGrænland

Nýverið tók til starfa íslenskur listalýðháskóli, LungA skólinn á Seyðisfirði. Fyrir nánari upplýsingar eða umsóknir heimsækið www.lunga.is/school.

Styrkir til lýðháskólanáms
Undanfarin misseri hefur Norræna félagið á Íslandi veitt íslenskum nemendum á norrænum lýðháskólum styrki. Lýðháskólastyrkir félagsins eru háðir fjárveitingu frá NORDPLUS VOKSEN.

Umsóknareyðublaðið og allar upplýsingar fæst hér.

Norræna félagið í Danmörku hefur einnig veitt styrki til lýðháskólanáms í Danmörku

Facebook síða
Við höfum opnað lýðháskólasíðu á Facebook fyrir fyrrum, núverandi og verðandi lýðháskólanema. Þar hafa skapast líflegar umræður og margir hafa sagt frá sinni lýðháskólaupplifun. Ef þú vilt lesa um hvernig íslenskum lýðháskólanemum hefur líkað dvölin úti og jafnvel spyrjast fyrir um þinn skóla skaltu ganga í grúppuna Lýðháskólar á Norðurlöndum.

Lýðháskólar á Íslandi
Bjarney Kristín Ólafsdóttir fjallaði um lýðháskólahugsjónina og sögu lýðháskóla á Íslandi í lokaritgerð sinni í guðfræði frá Háskóla Íslands í maí 2011. Hér má lesa ritgerðina.